Minningarmótið sem er styrktarmót afrekssviðs GKG var haldið núna á Laugardaginn í blíðskaparveðri á Leirdalnum. Þátttaka var með eindæmum góð þetta árið en 140 kylfingar voru skráðir til leiks.

Mótið var að mörgu leiti dramatískt og stóð undir nafni sem minningarmót og styrktarmót afrekssviðs því fyrrverandi, núverandi og verðandi afrekskylfingar komu við sögu.

Í höggleiknum kom sá og sigraði Úlfar Jónsson sem á sínum tíma hlaut nafnbótina kylfingur síðustu aldar. Það voru engvir aukvissar sem Úlfar atti kappi við því í öðru sæti var okkar besti kylfingur, Birgir Leifur Hafþórsson. Það var eitt högg sem skildi þá kappa af en Úlfar spilaði á 65 höggum eða á 6 undir pari og Birgir Leifur spilaði á 66 höggum eða 5 undir pari. Í þriðja sæti á einum undir pari var Ingi Rúnar Birgisson, fimmtán ára gamall GKG-ingur sem hefur tekið þátt í afreksstarfi GKG undanfarin ár. Fleiri slíkir fylgdu í kjölfarið því jafnir í fjórða og fimmta sæti á 75 höggum voru þeir Sigurður Arnar Garðarsson (13 ára GKG-ingur) og Egill Ragnar Gunnarsson (19 ára GKG-ingur).

Í punktakeppninni sigraði Ingi Rúnar á 42 punktum. Með þeim árangri nær Ingi Rúnar því langþráða markmiði að teljast til meistaraflokkskylfinga en hann komst niður í 4,3 í forgjöf. Í öðru sæti, jafnframt á 42 punktum var Gunnar Karl Karsson og í þriðja sæti á 38 punktum var Björn Halldór Björnsson úr GL.

Nándarverðlaun voru á öllum par 3 brautum vallarins, og hlutu eftirfarandi kylfingar vinninga:

2. hola – Sindri Snær Skarphéðinsson GKG 1,37m
4 hringir á Hvaleyrarvelli

4. hola – Sindri Snær Skarphéðinsson GKG 2,30m
Galvin Green regnhlíf og handklæði frá Erninum
24 Srixon golfkúlur frá Erninum

9. hola – Sigtryggur Jónatansson GR 2,29m
Glaðningur frá Íslandsbanka

11. hola – Ingvar Andri Magnússon GR 16cm
4 hringir á Hvaleyrarvelli

13. hola – Magnús GKG 1,51m
Galvin Green regnhlíf og handklæði frá Erninum
24 Srixon golfkúlur frá Erninum

17. hola – Einar Tómasson GKG 87cm
Glaðningur frá Íslandsbanka

Við höldum því hátt á lofti að GKG sé fjölskylduvænn golfklúbbur og þátttakan í minningarmótinu endurspeglar þá staðreynd. Ingi Rúnar er sonur Birgis Leifs og spiluðu þeir saman í holli. Þá spiluðu saman í holli hjónin Ragnar Þór Ragnarsson og Hólmfríður Einarsdóttir með dótturinni Ölmu Rún Ragnarsdóttur en hún endaði í 4.-5. sæti á 38 punktum. Feðgarnir Egill Ragnar Gunnarsson og Gunnar Páll Þórisson spiluðu saman í holli og svona mætti lengi telja.

GKG þakkar öllum þeim sem þátt tóku og styrktu með þeim hætti afreksstarf félagsins.