Á hverjum degi í meistaramótinu verðum við með nándarverðlaun og sá aðili sem spilar á flestum punktum fær jafnframt verðlaun.
Á mýrinni var það Nökkvi Páll sem setti hann 3,13 metra frá holu.
Á Leirdalnum á 4. Holu var það Einar Einarsson sem setti hann 1,41 metra frá holu og á 17. er Snæbjörn Sigurðarson með 1,97 metra frá holunni.
Flesta punktana fékk hún Jóhanna Hjartardóttir eða 45 punkta.
Óskum við þessum kylfingum til hamingju með árangurinn!
Allir vinningshafar fá 5 skipta háftímakort í golfherma GKG.