About Úlfar Jónsson

This author has not yet filled in any details.
So far Úlfar Jónsson has created 854 blog entries.

Púttmótaröð GKG barna og unglinga hefst á laugardag 9. janúar

Púttmótaröð barna og unglinga í GKG rennur af stað á laugardag kl. 11 í Kórnum.

Mótin verða með hefðbundnu sniði líkt og undanfarin ár. Óþarfi er að skrá sig, bara mæta, og þátttaka er ókeypis.

Sjá helstu upplýsingar hér fyrir neðan.

Mótaröðin stendur yfir í fjóra mánuði, fyrsta mótið 9. janúar og seinasta […]

Námskeið hjá Golfskóla GKG hefjast í næstu viku – enn hægt að skrá sig!

GKG býður félagsmönnum upp á vetrarnámskeið sem hefjast eftir helgi. Annars vegar hádegisnámskeið og helgarnámskeið þar sem er áhersla er lögð á kennslu og æfingar, og hins vegar æfingar á kvöldin í stærri hópum þar sem áhersla er lögð á stöðvaþjálfun en minni kennslu. Fjórir PGA kennarar á vegum GKG […]

Keppnum lokið hjá afrekskylfingum GKG í Flórída

Ungir afrekskylfingar í GKG hafa ekki slegið slöku við um jólin og hafa æft og keppt á fullu um jólin. Í gær luku þau keppni í þremur mótum víðsvegar í Flórída og stóðu þau sig með prýði. Ljóst að þau eru reynslunni ríkari og mun hjálpa þeim í framhaldinu þegar […]

Elísabet, Hlynur og Sigurður ljúka keppni í dag á sterkum mótum í Flórída

Elísabet Ágústsdóttir, Hlynur Bergsson og Sigurður Arnar Garðarsson, ungir afrekskylfingar úr GKG, hefja lokahringi sína í sterkum mótum í dag. Elísabet keppir á Hurricane Tour mótinu á Orange County vellinum í Orlando, Hlynur keppir á Junior Orange Bowl boðsmótinu, en það er haldið á Biltmore vellinum í Miami. Loks keppir […]

Ungir afrekskylfingar GKG á fullu í keppnisgolfi um jólin

Ungir GKG kylfingar nýta jólafríið heldur betur vel til að keppa í Flórída enda aðstæður frábærar, eða kannski aðeins of góðar, en 28-32° stiga hiti er um þessar mundir í Flórída.

Sigurður Arnar Garðarsson og systurnar Hulda Clara og Eva María Gestsdætur eru að keppa á Doral Publix mótinu í Miami, […]

Námskeið hjá Golfskóla GKG – tilvalin jólagjöf

GKG býður upp á vetrarnámskeið sem hefjast eftir áramót. Annars vegar hádegisnámskeið og helgarnámskeið þar sem er áhersla er lögð á kennslu og æfingar, og hins vegar æfingar á kvöldin í stærri hópum þar sem áhersla er lögð á stöðvaþjálfun en minni kennslu. Fjórir PGA kennarar á vegum GKG munu […]

Elísabet Ágústsdóttir hlaut Háttvísibikar GSÍ

Guðmundur Oddsson, fráfarandi formaður GKG, veitti Elísabetu Ágústsdóttur Háttvísibikar GSÍ, sem veittur er þeim unga kylfingi sem sýnt hefur góða frammistöðu utan vallar sem innan, og verið öðrum til fyrirmyndar hvað varðar dugnað og háttvísi.

Bikarinn var veittur í fyrsta sinn í fyrra, og fékk þá Aron Snær Júlíusson þessa miklu viðurkenningu.

Helstu […]

Skemmtilegt viðtal við Ragnar Má og Harald Franklin sem spila háskólagolf í Louisiana

Ragnar Már Garðarsson úr GKG og Haraldur Franklin Magnús úr GR stunda nám og leika keppnisgolf með University of Louisiana í bænum Lafayette, þar sem aðstæður eru afar góðar til golfleiks.

Skólafélagar þeirra útbjuggu skemmtilegt myndband þar sem okkar menn ræða um á léttum nótum menningarlegan mun á Íslandi og Louisiana […]

Leiga í golfhermi GKG í Kórnum

Kæru félagar.

GKG tekur í notkun 4 golfherma í nýju íþróttamiðstöðinni þegar hún verður tilbúin. Ekki er hægt að tímasetja opnunina nákvæmlega að svo stöddu.

Við höfum hinsvegar sett upp E6/Trackman golfhermi að fullkomnustu gerð í Kórnum, og gefst félagsmönnum tækifæri á að leigja tíma frá og með næstu helgi og þangað […]

Birgir er úr leik á lokaúrtökumótinu á Spáni

Birgir Leifur Hafþórsson, úr GKG, er úr leik á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í golfi. Hann lék fjórða hringinn á -2 eða 68 höggum en það dugði ekki til og endaði hann á +3 samtals (74-72-73-68). Þeir kylfingar sem náðu að vera í einu af 70 efstu sætunum leika tvo […]

Go to Top