Gunnar Jónsson fékk viðurkenningar frá Garðabæ og Kópavogi
Á Íþróttahátíð Garðabæjar (10.1) og Kópavogs (15.1) hlaut Gunnar Jónsson, stjórnarmaður GKG til margra ára, viðurkenningar fyrir framlag sitt til íþrótta- og æskulýðsstarfa.
Gunnar hefur verið þungavigtarmaður í félagsmálum GKG frá seinustu aldamótum. Gunnar hefur ávallt unnið afar óeigingjarnt starf til eflingar barna-, unglinga- og afreksstarfs GKG, auk þess skilað […]
Íslandsmeistarar GKG fengu viðurkenningu frá Garðabæ
Vegna aðstæðna verður engin hefðbundin íþróttahátíð í Garðabæ og hefur ÍTG því heimsótt íþróttafélög bæjarins og afhent viðurkenningar fyrir Íslandsmeistaratitla á árinu.
Það var lágstemmd en góð stund sem við áttum í gær þegar Íslandsmeisturum GKG var afhent sínar viðurkenningar fyrir frábæran árangur á árinu.
Kjöri íþróttakarli og íþróttakonu Garðabæjar verður líst […]
Hvað segir GKG-ingurinn Hlöðver Sigurgeir Guðnason?
GKG-ingur dagsins er Seljahverfisbúinn (en umfram allt Eyjapeyji) Hlöðver eða Hlöbbi eins og við köllum hann flest. Hann fór úr því að vera hálfpartinn neyddur út í golfið um fimmtugt í að vera alger meistari í sportinu og ekki bara fyrir sig heldur líka okkur hin því hann er einn […]
Hvað segir GKG-ingurinn María Björk Pálsdóttir?
Við kynnum með stolti Íslandsmeistara í holukeppni 19 – 21 árs kvenna 2020, Maríu Björk Pálsdóttur. Þessi flotti GKG-ingur er 19 ára Kópavogsbúi með 3,5 í forgjöf, er hluti af öflugum meistaraflokki klúbbsins og enn einn nestissnillingurinn okkar! 🙂
María Björk átti sitt besta tímabil til þessa og ljóst að vel […]
Golfvellir loka!
Ágæti kylfingur. Samkvæmt fyrirmælum sóttvarnaryfirvalda hefur golfvellinum verið lokað til 19. október. Við biðjumst velvirðingar á þessum óþægindum og vonumst til þess að þú sýnir þessum aðstæðum skilning. Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Golfsambands Íslands, golf.is.
Fólk sem átti bókaða rástíma í dag hefur verið afbókað.
Starfsfólk GKG
Úrslit Bændaglímunnar 2020 – Lið Venna Páer sigraði!
Samúðarkveðjur
GKG fjölskyldan sendir Agnari Má framkvæmdastjóra og fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur vegna fráfalls Eiríku Steinunnar, sem var elsta dóttir Agnars og Soffíu Dóru. Eiríka Steinunn lést eftir erfið veikindi á gjörgæsludeild Landspítalans 9. september s.l. Hún var 27 ára gömul.
Útför hennar fer fram í dag, 24. september 2020.
Fyrir hönd GKG,
Guðmundur […]
Þrír níu holu vellir hjá GKG frá 16.09.2020 – á virkum dögum
Nú á haustdögum þegar dag tekur að stytta skiptum við Leirdalsvelli upp í tvo níu holu velli á virkum dögum. Frá og með miðvikudeginum 16. september verðum við því með þrjá níu holu velli fram að lokun valla seinna í haust.
Völlur 1 – Þeir sem skrá sig til leiks á […]
Vinkonumót GR og GKG – úrslit
Vinkvennamót GKG og GR fór fram dagana 21. ágúst í Korpu og 25. ágúst í Leirdalnum. Þátttakan var frábær 115 konur mættu til leiks í Korpu og 97 konur mættu í Leirdalinn í algjörlega frábæru veðri báða dagana.
Mótið er punktakeppni með hámarksforgjöf 36 þar sem veitt eru verðlaun fyrir 1. […]









