Derrick Moore valinn kennari ársins þriðja árið í röð!

Aðalfundur PGA á Íslandi, sem eru samtök atvinnukylfinga, fór fram s.l. laugardag hér í GKG.

Afreksþjálfari GKG, Derrick Moore, var útnefndur PGA kennari ársins fyrir árið 2017. PGA á Íslandi stóð fyrir kosningu meðal félagsmanna, þar sem Derrick var einn af fjórum tilnefndum kennurum. Þetta er í fjórða sinn sem Derrick hlýtur þennan […]

Yfirlýsing vegna #metoo umræðunnar

Kæru félagar,

ÍSÍ setti frá sér neðangreinda tilkynningu í framhaldi af #metoo herferðinni.

Við hjá GKG fögnum þessari umræðu og þökkum öllum þeim fjölmörgu einstaklingum sem hafa komið fram með frásagnir sínar. Viljum við jafnframt benda félagsmönnum á viðbrögð gegn kynferðislegu ofbeldi og einelti sem finna má í viðauka við Gæðahandbók GKG.

Tveir nýjir golfkennarar hjá GKG

Tveir nýjir kennarar hefja störf um áramótin hjá GKG, þeir Gunnlaugur Elsuson PGA golfkennari og Ari Magnússon PGA golfkennaranemi. Sigurpáll sem flytur sig um set verður þó áfram með sína hópa út janúar.

Gunnlaugur Elsuson (Gulli) útskrifaðist sem íþróttafræðingur frá Kennaraháskólanum árið 2005 og […]

Golf- og jóganámskeið hefjast í janúar – skráning hafin

Eftifarandi námskeið hefjast í janúar og er skráning hafin. Upplagt að byrja árið af krafti!

Hópnámskeið 4 skipti
Aðeins fimm manns að hámarki eru í hverjum hópi og því persónuleg nálgun á námskeiðunum. Þar af leiðendi henta þau breiðum hópi kylfinga, allt frá lág- til háforgjafarkylfinga. Á námskeiðunum er lögð áhersla á […]

GKG endaði í 7. sæti á EM klúbbliða!

Aron Snær Júlíusson, Sigurður Arnar Garðarsson og Ragnar Már Garðarsson náðu frábærum árangri fyrir GKG sem keppti á Evrópumeistaramóti golfklúbba 2017. GKG endaði í 7. sæti af alls 25 klúbbum sem tóku þátt.

Frá vinstri: Sigurður, Ragnar, Aron.

Aron Snær gerði sér lítið fyrir […]

Sveit GKG hefur leik í dag á EM klúbbliða í Frakklandi

Evrópumót klúbbliða hefst í dag á Golf du Médoc Resort í Bordeaux í Frakklandi.

Sveit GKG vann sér inn þátttökurétt á mótinu með sigri á Íslandsmóti golfklúbba 1. deild í ágúst s.l. Fyrir hönd GKG leika þeir Aron Snær Júlíusson, Ragnar Már Garðarsson og Sigurður Arnar Garðarsson. Liðsstjóri og þjálfari er Haukur […]

Vetrarnámskeiðin hjá Sigurpáli hefjast í nóvember – skráning hafin!

Ágæti kylfingur. 

Sigurpáll Geir Sveinsson PGA kennari GKG býður hinum almenna kylfingi upp á námskeið í vetur líkt og síðastliðinn vetur, en þau námskeið vöktu mikla lukku og komust færri að en vildu. Þetta er frábær leið til að æfa golf í vetur, fá góðar leiðbeiningar og mæta síðan tilbúin(n) leiks […]

Ný námskeið hjá Hlöðveri hefjast 18. og 20. september – skráning hafin.

Nú mætir hann Hlöðver okkar PGA kennari galvaskur og býður ykkur upp á tveggja skipta námskeið. Það er nóg eftir af golftímabilinu og því upplagt að fá góða kennslu sem hjálpa til við að lækka forgjöfina. 

Staðan 17.9

Járnahögg og dræv 18.9 og 25.9 – einstaklingsmiðuð ráð varðandi langa spilið.
Mánudagar kl. 17-18 – tvö […]

Móttaka til heiðurs Birgi Leifi í kvöld kl 20

Eins og kunnugt er sigraði Birgir Leifur Hafþórsson á sínu fyrsta atvinnumannamóti s.l. helgi í Frakklandi, með miklum glæsibrag.

Af þessu tilefni bjóða GKG, Forskot afrekssjóður kylfinga og Golfsamband Íslands til móttöku honum til heiðurs hér í Íþróttamiðstöð GKG kl. 20 í kvöld. 

Allir eru hjartanlega velkomnir á þennan viðburð til að samfagna […]

Birgir Leifur sigurvegari í Frakklandi á Challenge Tour!

Birgir Leifur Hafþórsson fagnaði sínum fyrsta sigri á Challenge mótaröðinni (Áskorendamótaröðinni) í dag. Sjöfaldi Íslandsmeistarinn úr GKG þurfti ekki að tía boltann upp á lokahringnum því lokaumferðin var felld niður vegna úrkomu.

Birgir var með sjö högga forskot fyrir lokahringinn og stóð því uppi sem sigurvegari. Þetta er í fyrsta sinn […]

Go to Top