Viðhald Æfingasvæðis
Fimmtudaginn 15. júní munum við loka æfingasvæðinu frá klukkan 7 til 12 vegna viðhalds.
Kveðja
Vallarstjóri
Fimmtudaginn 15. júní munum við loka æfingasvæðinu frá klukkan 7 til 12 vegna viðhalds.
Kveðja
Vallarstjóri
Framundan eru ný námskeið hjá Hlöðveri PGA kennara hjá GKG.
Námskeiðin eru opin öllum kylfingum en um er að ræða 3 skipti þar sem lögð er áhersla á góða tækni og góðar æfingar í púttum og vippum og sveiflu.
Tímasetningar í boði:
Námskeið mánudaga 19.6 – 26.6 – 3.7 – uppselt
Námskeið þriðjudaga 20.6 – […]
Birgir Leifur Hafþórsson lék vel á lokahringnum á KPMG mótinu á Áskorendamótaröðinni í Belgíu í gær. Sjöfaldi Íslandsmeistarinn úr GKG var 14.-16. sæti á -10 samtals fyrir lokahringinn en hann bætti töðu sína og endaði jafn í 4. sæti á -16 samtals (69-68-69-66). Frábær spilamennska hjá Birgi!
Nú styttist í að Punktamótaröð GKG hefjist. Næsta mánudag byrjar fjörið og hvetjum við alla félagsmenn GKG að láta þessa mótaröð ekki framhjá sér fara.
Hér eru upplýsingar um mótaröðina:
Fyrirkomulag Punktamóts GKG 2017
Árið 2017 verður spilað á mánudögum og stendur mótið yfir stóran hluta sumarsins.
Skráning verður með breyttum hætti og fer fram með […]
UPPSELT ER Á ÞESSI NÁMSKEIÐ!
Framundan eru ný námskeið hjá Sigurpáli PGA kennara hjá GKG.
Námskeiðin eru opin öllum kylfingum en um er að ræða 4 skipti þar sem lögð er áhersla á góða tækni og góðar æfingar í púttum, vippum og glompu og sveiflu.
Tímasetningar í boði:
Námskeið mánudaga 19.6 – 26.6 – […]
Hulda Clara Gestsdóttir úr GKG, 15 ára gömul, náði frábærum árangri um helgina á Eimskipsmótaröðinni þegar hún hafnaði í 3. sæti í kvennaflokki. Vel gert hjá Huldu! Í karlaflokki náði Hlynur Bergsson besta árangrinum, 6. sæti.
En þau Vikar Jónassson úr GK og Ragnhildur Kristinsdóttir GR sigruðu á Símamótinu á Eimskipsmótaröðinni […]
Árleg holukeppni GKG er innanfélagsmótið, þar sem hinn almenni kylfingur á góða möguleika að verða klúbbmeistari og hljóta titilinn „Holumeistari GKG“. Þetta er mótið, þar sem allir eiga jafna möguleika á sigri, ekkert síður kylfingar með háa forgjöf.
Í holukeppni með forgjöf er það bara dagsformið sem ræður!
Mótið byrjar á úrtökumóti […]
Rétt til þátttöku hafa allir kylfingar sem verða 50 ára á árinu 2017 eða eru eldri. Sveitakeppnin, (Íslandsmeistaramót golfklúbba, eldri kylfingar) fer fram á Öndverðarnesvelli í Grímsnesi dagana 18. – 20. ágúst.
Stillt hefur verið upp 6 mótum til valsins og eru talin upp hér neðar. Leikið er af gulum teigum, […]
Kæru félagar,
Punktamót GKG eða mánudagsmótaröðin hefst mánudaginn 12. Júní. Um er að ræða 7 mót og eru þrír bestu hringirnir sem telja.
Í ár ætlum við ekki að setja mótið upp sem mót á golf.is heldur geta félagsmenn sent beiðni um rástíma á [email protected] viku fyrir mót.
Mótaröðin er því bæði […]
Þá er að koma að einu skemmtilegasta móti sumarsins en það verður haldið laugardaginn 27. maí. Um er að ræða hjóna og parakeppni GKG.
Leikfyrirkomulagið er betri bolti m/forgjöf þar sem betra skor liðsins telur á holu. Um er að ræða innanfélagsmót en makar úr öðrum klúbbum eru þó velkomnir.
Mótsgjaldið er […]