Æfingar barna og unglinga verða inni í Kórnum í dag

Vegna leiðindaveðurs þá munum við færa allar æfingar inn í Kórinn í dag.

Við gerum ráð fyrir að æfingar verði aftur komnar út á morgun þar sem spáin er aðeins betri, en vinsamlegast fylgist með tölvupóstinum og/heimasíðunni vegna frétta af staðsetningu æfinga.

Með kveðju,

Þjálfarar GKG

By |24.05.2011|Categories: Fréttir almennt|

Guðjón Henning tryggði sér fyrsta sigurinn á Eimskipsmótaröðinni

Guðjón Henning Hilmarsson gerði sér lítið fyrir og tryggði sér fyrsta sigurinn á Eimskipsmótaröðinni í Vestmannaeyjum s.l. helgi. Guðjón lék seinni hringinn einkar glæsilega, á 65 höggum, fimm undir pari, en fyrri hringinn lék hann á 71 höggi. Guðjón endaði tveimur höggum á undan Stefáni Má Stefánssyni […]

By |14.06.2011|Categories: Fréttir almennt|

Arionbankamót unglinga á Leirdalsvelli um helgina

Eins og glöggir meðlimir hafa kannski séð fer fram unglingamót á vegum GSÍ á Leirdalsvellinum nú um helgina (18. og 19. júní). Mótið kom óvænt upp og biðjumst við velvirðingar á þeim óþægindum sem mótið kann að valda.

Um leið viljum við benda meðlimum á að þeir geta spilað […]

By |16.06.2011|Categories: Fréttir almennt|

Þrír úr GKG í landsliðum Íslands

Landslið Íslands voru valin fyrir skemmstu og voru þrír GKG kylfingar valdir í liðin sem leika í helstu verkefnum sumarsins.

Þeir Alfreð Kristinsson og Guðjón Henning Hilmarsson munu leika með A-landsliði karla í EM landsliða í Portúgal 5.-9. júlí. Leikið verður á Victoria golfvellinum í Algarve og tekur […]

By |22.06.2011|Categories: Fréttir almennt|
Go to Top