Úrslit í sjötta púttmóti vetrarins 12. mars
Sjötta mótinu lauk um helgina í púttmótaröð barna og unglinga GKG. Að þessu sinni tóku aðeins 18 krakkar þátt, en væntanlega hafa einhverjir ekki áttað sig á því að mótið var viku eftir seinasta mót í stað tveimur vikum síðar eins og venjan hefur verið. Ástæðan er sú að næsta laugardag fer stór hópur kylfinga […]
Úrslit í fimmta púttmóti vetrarins í púttmótaröð barna og unglinga
Fimmta mótinu lauk í dag í púttmótaröð barna og unglinga GKG, en mótin eru leikin annan hvern laugardag. Að þessu sinni tóku 28 krakkar þátt. Alls verða 9 mót í vetur, og telja bestu 4 mótin í heildarkeppninni, en veitt verða einnig verðlaun fyrir bestu mætinguna. Hægt er að sjá árangur efstu í hverjum flokki […]
Íslendingamót í Louisiana
Sannkallað Íslendingamót fór fram í háskólagolfinu á Oakbourne vellinum í Lafayette í Louisiana, en Haraldur Franklin Magnus og okkar maður úr GKG, Ragnar Már Garðarsson keppa fyrir University of Louisiana – Lafayette, sem hélt þetta háskólamót í 31. sinn.
Að auki kepptu Bjarki Pétursson úr GB og Gísli Sveinbergsson úr GK […]
Meistaraflokkur GKG hitti Sean Foley og Hideki Matsuyama
Hluti af meistaraflokki GKG er núna í æfingabúðum í Orlando í Flórída og æfir þar við frábærar aðstæður. Þessi ferð er að reynast hið besta ævintýri en við æfingar sínar á Keene´s Point vellinum rakst hópurinn á PGA Tour stjörnuna Hideki Matsuyama frá Japan, sem var mættur á æfingasvæðið daginn eftir […]
Úrslit í fjórða púttmóti vetrarins
Fjórða mótinu lauk í dag í púttmótaröð barna og unglinga GKG, en mótin eru leikin annan hvern laugardag. Þátttakan var mjög flott, en 38 krakkar tóku þátt. Alls verða 9 mót í vetur, og telja bestu 4 mótin í heildarkeppninni, en veitt verða einnig verðlaun fyrir bestu mætinguna. Hægt er að sjá árangur þriggja […]
Opnunartímar í Kórnum fyrir félagsmenn – frá 15. febrúar til 10. maí 2016
Kæru félagar.
Skráning á námskeið fyrir félagsmenn GKG hefur gengið mjög vel og hefur það áhrif á opnunartíma fyrir kylfinga sem vilja koma og æfa sig.
Æfingaaðstaðan er opin samkvæmt stundaskrá sem sést með því að smella hér. Taflan er birt með fyrirvara um breytingar.
Þetta sýnir hvað mikill áhugi er […]
Derrick Moore kennari ársins hjá PGA á Íslandi
Aðalfundur PGA á Íslandi, sem eru samtök atvinnukylfinga, fór fram á laugardag í höfuðstöðvum ÍSÍ.
Á fundinum var kennari ársins valinn og hlaut afreksþjálfari GKG, Derrick Moore, þennan mikla heiður.
Derrick hlýtur viðurkenninguna í annað sinn, en hér fyrir neðan má sjá lista yfir kennara ársins frá upphafi.
Við óskum Derrick innilega til […]
Kórinn verður lokaður á sunnudag frá kl. 9-12 og 15-17
Kæru félagar.
Á sunnudag 14. febrúar verður golfaðstaða GKG í Kórnum lokuð frá kl. 09:00 – 12:00 og síðan 15-17 vegna landsliðsæfinga GSÍ. Námskeið hjá Golfskóla GKG eru frá 12-15.
Hægt er að æfa eftir þann tíma til kl. 22:00.
Þökkum fyrir skilning á þessu.
Með bestu kveðju,
Úlfar Jónsson
Íþróttastjóri GKG









