Golfskóli GKG: Námskeið í maí hjá Hlöðveri PGA golfkennara

Kæru félagar.

Nú styttist í að vellirnir okkar opni og því upplagt að fá góðar leiðbeiningar til að njóta golfsins enn betur. Golfskóli GKG býður upp á mörg námskeið sem henta breiðum hópi kylfinga.  Hópastærð er takmörkuð við 5-6 manns þannig að hver og einn fær persónulega nálgun.

Hér fyrir neðan má sjá […]

GKG fékk afhenta viðurkenningu Fyrirmyndarfélags ÍSÍ

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar fékk endurnýjun viðurkenningar félagsins sem fyrirmyndarfélag ÍSÍ laugardaginn 9. apríl síðastliðinn.  Þann dag fékk félagið einnig afhenta nýja og glæsilega aðstöðu við Vífilsstaði í Garðabæ.  Það var Lárus Blöndal forseti ÍSÍ sem afhenti formanni félagsins Finni Sveinbjörnssyni viðurkenninguna.  Á myndinni eru frá vinstri þeir Lárus og Finnur ásamt […]

Vinningshafar í leikjum á opnunarhátíð GKG

Í tengslum við opnun nýrrar Íþróttamiðstöðvar GKG, þá gátu gestir kynnt sér aðstöðuna og tekið þátt í skemmtilegum stöðvaþrautum, sem afrekskylfingar klúbbsins höfðu umsjón með. Þátttaka var gríðarlega góð, og hér fyrir neðan er hægt að skoða úrslitin í keppnunum.

Masters spurningaleikur
Spurt var:

Á hvaða velli er Masters haldið?
Svar:  Augusta […]

Skráning er hafin á nýliðanámskeið GKG

Skráning á nýliðanámskeið GKG er hafin, en þessi námskeið eru ætluð nýjum félögum sem eru að stíga fyrstu skrefin í golfinu og hafa ekki fengið forgjöf. Nýjir félagar sem koma úr öðrum klúbbum og hafa fengið forgjöf eða áður tekið þátt á nýliðanámskeiði á vegum golfklúbbs, þurfa ekki að taka […]

Opnunartímar í Kórnum fyrir félagsmenn – frá 15. febrúar til 10. maí 2016

Kæru félagar.

Skráning á námskeið fyrir félagsmenn GKG hefur gengið mjög vel og hefur það áhrif á opnunartíma fyrir kylfinga sem vilja koma og æfa sig.

Æfingaaðstaðan er opin samkvæmt stundaskrá sem sést með því að smella hér. Taflan er birt með fyrirvara um breytingar.

Þetta sýnir hvað mikill áhugi er […]

Kórinn verður lokaður á sunnudag frá kl. 9-12 og 15-17

Kæru félagar.

Á sunnudag 14. febrúar verður golfaðstaða GKG í Kórnum lokuð frá kl. 09:00 – 12:00 og síðan 15-17  vegna landsliðsæfinga GSÍ.  Námskeið hjá Golfskóla GKG eru frá 12-15.

Hægt er að æfa eftir þann tíma til kl. 22:00.

Þökkum fyrir skilning á þessu.

Með bestu kveðju,

Úlfar Jónsson

Íþróttastjóri GKG

Nú er upplagt að skrá sig á námskeið sem eru framundan hjá Golfskóla GKG

Kæru félagar.
 
Ný námskeið hjá Golfskóla GKG eru núna að hefjast í vikunni í hádeginu á þriðjudag 9.feb og annað á fimmtudag 11.feb.
 

Opnunartímar í Kórnum fyrir félagsmenn – janúar til maí 2016

Kæru félagar.

Við viljum benda á að æfingaaðstaða GKG er opin í Kórnum fyrir félagsmenn og hvetjum við alla til að nýta sér hana og æfa vel núna og koma vel undirbúin til leiks í vor.

Æfingaaðstaðan er opin samkvæmt stundaskrá sem sést með því að smella hér. Taflan er […]

Námskeið hjá Golfskóla GKG – tilvalin jólagjöf

GKG býður upp á vetrarnámskeið sem hefjast eftir áramót. Annars vegar hádegisnámskeið og helgarnámskeið þar sem er áhersla er lögð á kennslu og æfingar, og hins vegar æfingar á kvöldin í stærri hópum þar sem áhersla er lögð á stöðvaþjálfun en minni kennslu. Fjórir PGA kennarar á vegum GKG munu […]

Elísabet Ágústsdóttir hlaut Háttvísibikar GSÍ

Guðmundur Oddsson, fráfarandi formaður GKG, veitti Elísabetu Ágústsdóttur Háttvísibikar GSÍ, sem veittur er þeim unga kylfingi sem sýnt hefur góða frammistöðu utan vallar sem innan, og verið öðrum til fyrirmyndar hvað varðar dugnað og háttvísi.

Bikarinn var veittur í fyrsta sinn í fyrra, og fékk þá Aron Snær Júlíusson þessa miklu viðurkenningu.

Helstu […]

Go to Top