Glæsilegasta æfingaaðstaða fyrr og síðar hjá GKG
Þann 20. maí 2006 undirrituðu þeir Gunnar I. Birgissonar bæjarstjóri Kópavogs og Gunnars Einarssonar bæjarstjóri Garðabæjar fyrir hönd sinna bæjarfélaga og Guðmundur Oddsson formaður GKG fyrir hönd klúbbsins viljayfirlýsingu í þremur liðum þar sem kemur fram að ofangreindir aðilar fyrir hönd sinna bæjarfélaga og klúbbsins lýsi yfir vilja um áframhaldandi stuðning við uppbyggingu GKG á næstu árum. Viljayfirlýsing þessi sem er ákveðin áfangi í áralöngum viðræðum bæjarfélaganna og forsvarsmanna GKG um áframhaldandi uppbyggingu golfklúbbsins tekur á þeim málum sem helst myndu standa klúbbnum fyrir þrifum við áframhaldandi þróun og vöxt á næstu árum.
Allt frá því undirritun viljayfirlýsingarinnar í mai á síðasta ári hefur verið unnið ötullega af hálfu GKG að þeim verkefnum sem viljayfirlýsingin tiltók, en hún hljómar þannig.
Tveir kylfingar úr GKG voru í hópi þeirra 10 sem komu til greina sem íþróttamaður Garðabæjar fyrir árið 2006. Það voru þeir Birgir Leifur Hafþórsson og Sigmundur Einar Másson.
Nokkrir af stuðningsmönnum Birgis Leifs hafa ákveðið að efna til herrakvölds á Hótel Loftleiðum föstudagskvöldið 29. desember (í kvöld) klukkan 19:00. Miðar fást í öllum golfbúðunum Nevada Bob, Hole in One og Golfbúðinni í Hafnarfirði. Miðinn kostar 7.500 krónur og rennur allur ágóði af þessu kvöldi til Birgis Leifs sem er að hefja þáttöku á Evrópumótaröðinni. Hægt verður að fá miða við innganginn einnig.
Stjórn og starfsfólk Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar óskar öllum félagsmönnum sínum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Megi Guð og gæfan fylgja ykkur yfir hátíðirnar.