Slide

Úrslit í V Sport Unglingamótaröð GKG 3. júlí

Í gær fór fram þriðja mótið af sex í V Sport Unglingamótaröð GKG. Margir náðu flottum árangri og yfir 40 punktar sáust frá fjórum kylfingum, þannig að forgjöf þeirra lækkaði verulega, sem er vel af sér vikið. Hér fyrir neðan má sjá nöfn þeirra sem náðu verðlaunasætum, en heildarúrslit eru […]

Úrslit í Intersport Open

Intersport Open fór fram á Leirdalsvellinum þann 29. júní.  137 kylfingar voru skráðir til leiks og léku í blíðskapaveðri. Úrslitin urðu eftirfarndi:

Besta skor án forgjafar – 40.000 kr gjafabréf hjá golfverslun Intersport

Örn Ævar Hjartarson 70 högg

Punktakeppni:

1. sæti – 40.000 kr gjafabréf hjá golfverslun Intersport

Hákon Gunnarsson 43 punktar

2. sæti – 25.000 kr gjafabréf […]

Gísli Sveinbergsson í fanta formi, okkar strákar í góðum málum.

Gísli Sveinbergsson er í góðri stöðu fyrir lokahring Finnish Junior en hann er í öðru sæti, höggi frá fyrsta sætinu og mun spila í lokaráshópnum.

Okkar strákar eru í ágætis málum. Kristjófer Orri Þórðarson er í áttunda sæti en hann er á samtals 5 höggum yfir pari, 7 höggum frá efsta […]

Kristófer og Óðinn stóðu sig vel í dag á Finnish Junior

Kristófer Orri Þórðarson og Óðinn Þór Ríkharðsson léku ágætis golf á fyrsta hring Finnish International Junior Championship mótsins.

Kristófer lék á 74 höggum og Óðinn á 77, en parið er 72 á Cooke vellinum sem er rúmlega 6000 metra langur. Mikill hiti gerir keppendum erfitt fyrir, en í dag var 33 […]

Intersport Open 2013

GKG og Intersport halda Intersport Open laugardaginn 29. júní á Leirdalsvelli GKG.

Glæsilegir vinningar í formi gjafabréfa frá golfverslun Intersport Lindum Kópavogi.

Leikin er 18 holu punktakeppni með hámarksforgjöf 24.0 hjá körlum og 28.0 hjá konum. Einnig eru veitt verðlaun fyrir besta skor án forgjafar

Verðlaun:

Besta skor án forgjafar – 40.000 kr gjafabréf […]

Meistaramót GKG 2013

Þá fer að koma að því. Meistaramót GKG 2013 verður haldið dagana 7.-13. júlí.

Taktu þátt í skemmtilegasta móti ársins.

Skráning fer fram undir mótaskránni á www.golf.is og í ProShop GKG. Greiða þarf mótsgjald við skráningu.

Upplýsingar um flokkaskiptingu og keppnisdaga má finna hér.

Áætluð rásröð flokka fyrir hvern mótsdag má finna

Óðinn og Kristófer á sterku unglingamóti í Finnlandi

Á morgun hefst Finnish International Junior mótið á  Cooke vellinum í Vierumaki í Finnlandi. Um er að ræða stúlkna og drengjamót í flokkum 15-16 ára og 14 ára og yngri. Alls taka 102 Finnar og 54 útlendingar þátt, en Ísland er með flesta keppendur utan Finnana. Einnig koma keppendur frá […]

Úrslit í háforgjafamóti GKG

GKG stóð fyrir veglegu háforgjafarmóti sem haldið var á Mýrinni 22. júní. Markmiðið með háforgjafarmótinu er að gefa kylfingum með hærri forgjöf kost á að keppa á móti sem hefur sömu umgjörð og almenn mót. Tveir dómarar voru til taks sem keyrðu um og leiðbeindu kylfingum og þrír aðilar voru […]

Egill Ragnar, Guðjón Henning og Kjartan Dór komnir í 8 manna úrslit

Nú fer fram Íslandsmótið í holukeppni hjá Golfklúbbi Borgarness, en á morgun verða Íslandsmeistarar krýndir í karla- og kvennaflokki.

Nú eru einungis 8 kylfingar eftir í báðum flokkum og hafa Guðjón Henning Hilmarsson, Egill Ragnar Gunnarsson og Kjartan Dór Kjartansson staðist sig best af okkar fólki og eru komnir í 8 […]

By |22.06.2013|Categories: Fréttir|
Go to Top