Slide

Opnað fyrir skráningu í golherma GKG

Frá og með deginum í dag verður hægt að bóka tíma í golfhermum GKG. Stefnt er að því að hafa bókunarkerfi á netinu en þar til það verður tilbúið er hægt að bóka tíma í síma 565 7373.

Verð fyrir hálftíma fyrir kl. 15:00 á virkum dögum er kr. 1.500 fyrir […]

GKG fékk afhenta viðurkenningu Fyrirmyndarfélags ÍSÍ

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar fékk endurnýjun viðurkenningar félagsins sem fyrirmyndarfélag ÍSÍ laugardaginn 9. apríl síðastliðinn.  Þann dag fékk félagið einnig afhenta nýja og glæsilega aðstöðu við Vífilsstaði í Garðabæ.  Það var Lárus Blöndal forseti ÍSÍ sem afhenti formanni félagsins Finni Sveinbjörnssyni viðurkenninguna.  Á myndinni eru frá vinstri þeir Lárus og Finnur ásamt […]

Sjöunda púttmót vetrarins fór fram í nýrri Íþróttamiðstöð GKG

Sjöunda púttmóti barna og unglinga lauk um helgina, og fór það fram í nýrri Íþróttamiðstöð GKG. Greinilegt var að krakkarnir voru spenntir fyrir því að reyna við nýju flötina, enda var metþátttaka. Alls púttuðu 42 ungir kylfingar. Meira landslag er í nýju flötinni og brautirnar lengri en oftast í Kórnum, og […]

Nýr vert hjá GKG

Þau Trausti Víglundsson og hjónin Íris Ágústsdóttir og Ægir Friðriksson munu taka við sem vertar hjá GKG. Stefna þau á að hefja veitingaþjónustuna um það leiti sem vellir opna eða um mánaðarmótin.

Trausti er gamalreyndur úr golfheiminum, var meðal annars vert hjá Nesklúbbnum, Oddi og GR. Hann hefur séð um veitingareksturinn […]

Skemmtikvöld Taramar GKG kvenna

Skemmtikvöld Taramar GKG kvenna 20. apríl 2016

Húsið opnar kl. 19:00—fordrykkur í boði Freixent

Kynningar Taramar og Freixent

Matseðill

  • Forréttur að hætti Ægis
  • Andabringa
  • Kaffi og konfekt

Veislustjóri – Helga Möller
Tískusýning á golffatnaði
Verðlaunaafhending
Dregið úr skorkortum Taramar púttmótsins
Happdrætti
Verð 4.500 krónur

Skráning fyrir kl. 12:00 þriðjudaginn 19. apríl
gkgkonur@gmail.com
Enginn posi á staðnum – reikn. 0318-13-168089 kt. 300761-3059

Vinningshafar í leikjum á opnunarhátíð GKG

Í tengslum við opnun nýrrar Íþróttamiðstöðvar GKG, þá gátu gestir kynnt sér aðstöðuna og tekið þátt í skemmtilegum stöðvaþrautum, sem afrekskylfingar klúbbsins höfðu umsjón með. Þátttaka var gríðarlega góð, og hér fyrir neðan er hægt að skoða úrslitin í keppnunum.

Masters spurningaleikur
Spurt var:

Á hvaða velli er Masters haldið?
Svar:  Augusta […]

Ræða formanns byggingarnefndar við opnun Íþróttamiðstöðvar

Þetta er mikill gleðidagur hjá okkur öllum í GKG. Já raunar má segja að þetta sé mikill hamingjudagur fyrir alla íbúa Kópavogs og Garðabæjar, nú þegar við opnum glæsilegustu íþróttamiðstöð landsins. Þetta glæsilega hús hefur ekki dottið af himnum ofan, heldur er það afrakstur margra og mikillar vinnu. Í dag […]

Hugleiðing frá framkvæmdastjóra í tilefni opnunar Íþróttamiðstöðvar GKG

Kæru félagar,

Um helgina fögnuðum við saman opnun Íþróttamiðstöðvar GKG með glæsilegum hætti. Hátt í þúsund manns komu til okkar á laugardeginum og um 400 á sunnudeginum. Þetta eru mikil tímamót fyrir okkur GKG-inga og fyrir golfíþróttina í heild sinni. Það er mörgum sem ber að þakka þennan áfanga, verktökum, bæjarfélögum, […]

Kristófer, Sigurður og Flosi kepptu á Innisbrook um páskana

Kristófer Orri Þórðarson, Sigurður Arnar Garðarsson, og Flosi Valgeir Jakobsson, allir úr GKG, kepptu um páskana á sterku unglingamóti á hinum fræga Innisbrook Golf Resort, þar sem PGA mótaröðin heldur Valspar mótið.

Kristófer og Sigurður, sem eru báðir í landsliðshópi GSÍ, kepptu á Innisbrook Island vellinum, sem er um 6500 metra […]

Opnun Íþróttamiðstöðvar GKG

Kæru félagar,

þá er komið að þeim langþráða áfanga að opna Íþróttamiðstöðina okkar með formlegum hætti. Athöfnin verður laugardaginn 9. apríl næstkomandi. Athöfnin hefst kl. 16:00 með því að klippt verður á borða. Samhliða formlegri dagskrá verður boðið upp á léttar veitingar.

Eftir að formlegri dagskrá lýkur munu afrekskylfingar GKG sjá […]

Go to Top