Slide

Sumaræfingar að hefjast – skipting í hópa

Nú eru þjálfarar búnir að raða í hópa og allt til reiðu að hefja sumaræfingarnar barna og unglinga á mánudaginn 10. júní.

Hægt er að sjá nýja æfingatöflu og hópaskipan með því að smella hér. Tekið var tillit til óska um staðsetningu í hópum, en ef eitthvað er athugavert þá hafið […]

Gunnhildur og Ragnar Már sigurvegarar á Íslandsbankamótaröðinni á Hellu

Um seinustu helgi fór fram annað mót ársins á Íslandsbankamótaröðinni, í þetta sinn á Strandarvelli við Hellu. Þar voru okkar ungu kylfingar í baráttunni um sigur í fjórum flokkum af sex, en að lokum voru það Ragnar Már Garðarsson og Gunnhildur Kristjánsdóttir, sem sigruðu í flokkum sínum 17-18 ára. Ragnar […]

Undankeppni fyrir Holukeppni GKG 2013

Árleg holukeppni golfklúbba er innanfélagsmótið, þar sem hinn almenni kylfingur á góða möguleika að verða klúbbmeistari og hljóta titilinn „Holumeistari GKG“. Þetta er mótið, þar sem allir eiga jafna möguleika á sigri, jafnt karlar sem konur og ekki síst kylfingar með háa forgjöf.

Í holukeppni með forgjöf er það bara dagsformið […]

Reglufræðsla fyrir félagsmenn

Á morgun miðvikudagskvöld frá kl. 20-22 fer fram reglufræðsla undir stjórn Kjartans Bjarnasonar, yfirdómara GKG. Reglufræðslan er hluti af nýliðanámskeiði GKG, en félagsmönnum er velkomið að sitja fundinn og skerpa á kunnáttu sinni í golfreglunum. Reglufræðslan fer fram í golfskála GKG.

 

Nýliðanámskeið – frestun vegna veðurs

Nýliðanámskeið, sem átti að hefjast í dag, hefur verið frestað vegna veðurs, en veðrið ætlar að reyna á golf-þolinmæðina okkar.
Það er því skynsamlegt að fresta um viku, þ.e. verklega tímanum og spilakennslunni. Hinsvegar verður reglufundurinn á sínum tíma og innandyra í skálanum á miðvikudag kl. 20. Ný dagskrá er svohljóðandi:

5. […]

Kvennamót 2013

Kvennamót 28. maí sl. úrslit

Þriðjudaginn 28. maí 2013 var 9 holu golfmót hjá konum í GKG á Mýrinni.   Í þessu fyrsta móti sumarsins tóku 67 konur þátt og skemmtu sér vel. Úrslit mótsins eru eftirfarandi:

Sólveig Hauksdóttir, 19 punkta og fékk hún verðlaun frá Intersport

  1. Kristín Stefánsdóttir, 19 punkta og fékk hún […]

Fótbolti.net, eitt flottasta opna mót sumarsins

Hann er glæsilegur vinningalistinn á opna Fótbolti.net mótinu sem fer fram á Leirdalnum núna á laugardaginn.  Veitt eru verðlaun fyrir 12 sæti, 4 efstu, 7, 10, 15, 19, 27, 35, 49 og 61 sæti. Verðlaun eru veitt fyrir hin ýmsu afbrigði á 14 holum. Teiggjafirnar eru glæsilegar og þá er […]

Reglur um val á karlasveit GKG í Sveitakeppni eldri kylfinga 2013

Rétt til þátttöku hafa allir kylfingar sem verða 55 ára og eldri á árinu 2013. Sveitakeppnin fer fram á Akureyri 23. – 25. ágúst.

Það er hægt að taka þátt í 7 mótum og ræður röð kylfinga fjölda stiga sem þeir fá fyrir hvert mót. Leikið er af gulum teigum. Meðalskor […]

Go to Top