About Úlfar Jónsson

This author has not yet filled in any details.
So far Úlfar Jónsson has created 854 blog entries.

Sumaræfingar að hefjast – skipting í hópa

Nú eru þjálfarar búnir að raða í hópa og allt til reiðu að hefja sumaræfingarnar barna og unglinga á mánudaginn 10. júní.

Hægt er að sjá nýja æfingatöflu og hópaskipan með því að smella hér. Tekið var tillit til óska um staðsetningu í hópum, en ef eitthvað er athugavert þá hafið […]

Gunnhildur og Ragnar Már sigurvegarar á Íslandsbankamótaröðinni á Hellu

Um seinustu helgi fór fram annað mót ársins á Íslandsbankamótaröðinni, í þetta sinn á Strandarvelli við Hellu. Þar voru okkar ungu kylfingar í baráttunni um sigur í fjórum flokkum af sex, en að lokum voru það Ragnar Már Garðarsson og Gunnhildur Kristjánsdóttir, sem sigruðu í flokkum sínum 17-18 ára. Ragnar […]

Reglur um val á karlasveit GKG í Sveitakeppni eldri kylfinga 2013

Rétt til þátttöku hafa allir kylfingar sem verða 55 ára og eldri á árinu 2013. Sveitakeppnin fer fram á Akureyri 23. – 25. ágúst.

Það er hægt að taka þátt í 7 mótum og ræður röð kylfinga fjölda stiga sem þeir fá fyrir hvert mót. Leikið er af gulum teigum. Meðalskor […]

Sigmundur í fjórða sæti á Eimskipsmótaröðinni

Um helgina fór fram fyrsta mótið í Eimskipsmótaröðinni, mótaröð þeirra bestu á Íslandi. Mótið var haldið á Garðavelli á Akranesi, við erfiðar aðstæður, en mikill vindur geisaði á meðan mótinu stóð.

Sigmundur Einar Másson (Simmi), náði besta árangri okkar fólks, en hann hafnað í 4. sæti. Einnig náðu góðum árangri Ragnar […]

Keppnisleiðir barna og unglinga

Nú þegar keppnistímabilið er að hefjast og framundan skemmtilegt golfsumar á vellinum þá viljum við benda á hinar ýmsu leiðir sem börn og unglingar í GKG hafa þegar kemur að spili á vellinum og keppnum. Mikilvægt er að allir finni sér vettvang við hæfi og nái að þróa sinn áhuga […]

Frábær byrjun á tímabilinu hjá GKG unglingum

Fyrsta stigamóti ársins í Íslandsbankamótaröð unglinga lauk í gær hjá Golfklúbbi Þorlákshafnar. Óhætt er að segja að GKG kylfingar hafi komið vel stemmdir til leiks, en árangur okkar fólks var glæsilegur. Þrír sigrar komu í hús af alls sex flokkum! Einnig var gaman að sjá að einungis GR var með […]

Lokaúrslit í púttmótaröð barna og unglinga

Í vetur hafa farið fram púttmót barna og unglinga í GKG annan hvern laugardag frá áramótum. Á laugardag fór fram seinasta púttmótið og mættu 36 ungir kylfingar til leiks. Í heildarkeppninni töldu 5 bestu hringirnir, og var mjótt á mununum í mörgum flokkum þegar upp var staðið.

Úrslit vinningssæta í öllum […]

Skráning hafin á sumaræfingar barna og unglinga

Sæl og blessuð.

Nú höfum við opnað fyrir skráningar á sumaræfingar barna og unglinga, en æfingar hefjast eftir að skólum lýkur, 10. júní.  Til þess að geta tekið þátt í sumaræfingum GKG þarf að vera meðlimur í GKG og fylla út skráningarformið.

Allar upplýsingar, s.s. æfingatöflu, skipulag og markmið æfinga, og skráningarform […]

Úrslit í næst seinasta púttmótinu í vetur

Nú hafa 8 af 9 púttmótum vetrarins farið fram, og hér fyrir neðan má sjá besta árangur í hverjum flokki í mótinu s.l. laugardag. Einnig er hægt að skoða heildarúrslit með því að smella hér: Puttmotaroð_vetur_2013_stada_e_8_mot.

Við minnum síðan á seinasta púttmótið í mótaröðinni, en það fer fram laugardaginn 4. maí. […]

Ferðasaga eftir æfingaferð á Hacienda del Alamo

Stefna Íþróttanefndar GKG undanfarin ár hefur verið að efna til æfingaferða Keppnis- og Afrekshópa, auk Meistaraflokka. Fyrstu árin fóru Meistarflokkar í æfingaferðir til St. Andrew´s í Skotlandi, tvö ár voru æfingaferðir farnar til nágrennis Lundúna á Englandi, en síðastliðin 6 ár hefurSpánn orðið fyrir valinu, enda meira öryggi varðandi veður, […]

Go to Top