About Úlfar Jónsson

This author has not yet filled in any details.
So far Úlfar Jónsson has created 858 blog entries.

Ragnar Már Íslandsmeistari í holukeppni unglinga

Í gær lauk á Leirdalsvellinum okkar Íslandsmóti unglinga í holukeppni. Okkar kylfingar stóðu sig vel og komust í úrslit í þremur flokkum af sex. Ragnar Már Garðarsson stóð uppi sem sigurvegari í flokki 17-18 ára pilta eftir harða baráttu við félaga sinn Aron Snæ Júlíusson, en leikurinn fór 1/0.

Gunnhildur Kristjánsdóttir […]

Geymsla komin fyrir golfsett barna og unglinga

Mikið hefur verið spurt um geymslupláss fyrir golfsett barnanna sem eru að æfa hjá okkur. Skiljanlega myndi það leysa skutl-vandamál fyrir marga. Við höfum því leitað leiða til að leysa þetta vandamál og höfum þau gleðitíðindi að það hefur tekist.

Gámur hefur verið staðsettur fyrir aftan kennsluskýlið niðri á æfingasvæði og […]

Úrslit í móti nr. 1 í V-Sport Unglingamótaröðinni

Í gær fór fram fyrsta mótið í V-Sport Unglingamótaröð GKG. Eftir rigningu í morgunsárið kom einn besti dagur sumarsins og yfir 50 keppendur nutu þess að leika Leirdalsvöllinn, og náðu mörg hver mjög góðum árangri og lækkun í forgjöf. Óðinn Þór Ríkharðsson gerði sér litið fyrir og náði draumahögginu, fór […]

Sumaræfingar að hefjast – skipting í hópa

Nú eru þjálfarar búnir að raða í hópa og allt til reiðu að hefja sumaræfingarnar barna og unglinga á mánudaginn 10. júní.

Hægt er að sjá nýja æfingatöflu og hópaskipan með því að smella hér. Tekið var tillit til óska um staðsetningu í hópum, en ef eitthvað er athugavert þá hafið […]

Gunnhildur og Ragnar Már sigurvegarar á Íslandsbankamótaröðinni á Hellu

Um seinustu helgi fór fram annað mót ársins á Íslandsbankamótaröðinni, í þetta sinn á Strandarvelli við Hellu. Þar voru okkar ungu kylfingar í baráttunni um sigur í fjórum flokkum af sex, en að lokum voru það Ragnar Már Garðarsson og Gunnhildur Kristjánsdóttir, sem sigruðu í flokkum sínum 17-18 ára. Ragnar […]

Reglur um val á karlasveit GKG í Sveitakeppni eldri kylfinga 2013

Rétt til þátttöku hafa allir kylfingar sem verða 55 ára og eldri á árinu 2013. Sveitakeppnin fer fram á Akureyri 23. – 25. ágúst.

Það er hægt að taka þátt í 7 mótum og ræður röð kylfinga fjölda stiga sem þeir fá fyrir hvert mót. Leikið er af gulum teigum. Meðalskor […]

Sigmundur í fjórða sæti á Eimskipsmótaröðinni

Um helgina fór fram fyrsta mótið í Eimskipsmótaröðinni, mótaröð þeirra bestu á Íslandi. Mótið var haldið á Garðavelli á Akranesi, við erfiðar aðstæður, en mikill vindur geisaði á meðan mótinu stóð.

Sigmundur Einar Másson (Simmi), náði besta árangri okkar fólks, en hann hafnað í 4. sæti. Einnig náðu góðum árangri Ragnar […]

Keppnisleiðir barna og unglinga

Nú þegar keppnistímabilið er að hefjast og framundan skemmtilegt golfsumar á vellinum þá viljum við benda á hinar ýmsu leiðir sem börn og unglingar í GKG hafa þegar kemur að spili á vellinum og keppnum. Mikilvægt er að allir finni sér vettvang við hæfi og nái að þróa sinn áhuga […]

Frábær byrjun á tímabilinu hjá GKG unglingum

Fyrsta stigamóti ársins í Íslandsbankamótaröð unglinga lauk í gær hjá Golfklúbbi Þorlákshafnar. Óhætt er að segja að GKG kylfingar hafi komið vel stemmdir til leiks, en árangur okkar fólks var glæsilegur. Þrír sigrar komu í hús af alls sex flokkum! Einnig var gaman að sjá að einungis GR var með […]

Go to Top